Fara í innihald

Blaðsíða:Fölvar Rósir.djvu/98

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Leyf oss að fagna ljúfum tignar gesti;
Leyf oss að fella nokkur þakkar tár.
Velkominn aftur, vinur landsins bezti!
Vorar í sál, með slíkum óska-gesti.

Fögnuður er að finna þig hjer aftur,
Foringi! — Rætast þínar heilla spár.
Brýzt nú úr læðing bundinn þjóðar kraftur,
Býður þjer fylgd um næstu hundrað ár.
Vertu nú hjá oss — vinur landsins góði —
Í vilja, framkvæmd, tali voru og ljóði!

Víst er það, vinur, satt, vjer höfum sofið;
Sofandi — komstu í annað sinn — til vor.
Höfum vjer máske heitin við þig rofið?
Höfum vjer stígið nokkurt Jakobs spor!
Því hvessirð’ á oss “ættlands augun fríðu”?
— Er ekki sál þín — djúp af tign og blíðu!

Ennþá vjer munum — íturmennið fríða —
Eldinn, sem brann í þinni hreinu sál,
Oss þegar kvaddi alla til að stríða,
Og aldrei víkja fet, þitt snjalla mál.
Foringi! Sýndu forna lítillætið:
Forsetinn mikli — þiggðu tignarsætið!

—93—