Blaðsíða:Frumvarp Stjórnlagaráðs.pdf/11

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

Frumvarp til stjórnarskipunarlaga

Aðfaraorð

Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð. Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman berum við ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi og sögu, náttúru, tungu og menningu.

Ísland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi að hornstein­um.

Stjórnvöld skulu vinna að velferð íbúa landsins, efla menningu þeirra og virða marg­breytileika mannlífs, lands og lífríkis.

Við viljum efla friðsæld, öryggi, heill og hamingju á meðal okkar og komandi kynslóða. Við einsetjum okkur að vinna með öðrum þjóðum að friði og virðingu fyrir jörðinni og öllu mannkyni.

Í þessu ljósi setjum við okkur nýja stjórnarskrá, æðstu lög landsins, sem öllum ber að virða.

Undirstöður.

1. gr.

Stjórnarform.

Ísland er lýðveldi með þingræðisstjórn.

2. gr.

Handhafar ríkisvalds.

Alþingi fer með löggjafarvaldið í umboði þjóðarinnar. Forseti Íslands, ráðherrar og ríkisstjórn og önnur stjórnvöld fara með framkvæmdarvaldið. Hæstiréttur Íslands og aðrir dómstólar fara með dómsvaldið.

3. gr.

Yfirráðasvæði.

Íslenskt landsvæði er eitt og óskipt. Mörk íslenskrar landhelgi, lofthelgi og efnahagslögsögu skulu ákveðin með lögum.

4. gr.

Ríkisborgararéttur.

Rétt til íslensks ríkisfangs öðlast þeir sem eiga foreldri með íslenskt ríkisfang. Ríkisborgara­réttur verður að öðru leyti veittur samkvæmt lögum.

Engan má svipta íslenskum ríkisborgararétti.

Íslenskum ríkisborgara verður ekki meinað að koma til landsins né verður honum vísað úr landi. Með lögum skal skipað rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér, svo og fyr­ir hvaða sakir sé hægt að vísa þeim úr landi.

5. gr.

Skyldur borgaranna.

Stjórnvöldum ber að tryggja að allir fái notið þeirra réttinda og þess frelsis sem í þessari stjórn­arskrá felast.

Allir skulu virða stjórnarskrá þessa í hvívetna, sem og þau lög, skyldur og réttindi sem af henni leiða. 9