Þessi síða hefur verið prófarkalesin
8
Annar ölmusumaður
Við vorum aðkomumenn á sama bæ, þegar jeg sá hann í fyrsta skifti. Hann sat á rúmstokk, með pokann sinn á bakinu.
Landshorna-flakkarinn
Hvaða maður var það? Jeg er ókunnugur í þessum landsfjórðungi.
Þriðji ölmusumaður
Það var aumingi. Ef hann bæri ekki poka á bakinu, hjelt hann, að hann mundi steypast á höfuðið, af því að það væri svo þungt af vísdómi.
Landshorna-flakkarinn
- hlær.
Hann hefði verið gaman að sjá.
Fjórði ölmusumaður
Þjer hefði ekki komið hlátur í hug, hefðir þú sjeð hann. Þeir, sem eru veikir á sinninu, verðskulda öðrum fremur að vera guðs ölmusur.
Fimti ölmusumaður
- hefur horft út um gluggann.
Áin fer sívaxandi. Það hlýtur að hafa rignt feiknin öll upp til fjallanna.
- Tíu ára gömul telpa leiðir blindan ölmusumann inn. Hann heldur á litlum bögli undir handleggnum.