Fara í innihald

Blaðsíða:Galdra-Loftur (1915).djvu/137

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

133

Dísa

Loftur!

Varpar sjer yfir hann ekkaþrungin.

Biskupinn

Er hann dáinn?

Gengur til hans og beygir sig yfir hann og Dísu.

Friður veri með sál þinni.

Leggur höndina á höfuð Dísu.

Barnið mitt! Barnið mitt! Hvað þú hefur elskað hann heitt.

Ólafur

hefur staðið grafkyr.

Dauðinn hefur fyrirgefið honum.

Tjaldið.