Þessi síða hefur verið prófarkalesin
22
Loftur
- heyrir ekki.
Steinunn
- hærra, sorgbitin.
Loftur!
Loftur
- lítur upp. Þegar hann sjer Steinunni, dofnar yfir honum.
Ert það þú?
Steinunn
Bjóstu við einhverjum öðrum ?
Loftur
Jeg hjelt þú værir í kirkju.
Steinunn
Það var sú tíð, að þú þektir fótatakið mitt. Nú þekkir þú ekki einu sinni málróminn minn.
Loftur
Komstu til þess að álasa mjer?
Steinunn
Nei.
- Þegir andartak.
Jeg fór í sparifötin mín í dag. Jeg veit, það gleður þig, að jeg sje vel til fara. Horfðu á mig.