Fara í innihald

Blaðsíða:Galdra-Loftur (1915).djvu/52

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

48

þeim. Þú veist ekki hvað oft jeg hef barist við svefninn, þegar hann ætlaði að yfirbuga mig. Jeg hata svefninn, vegna þess að hann stelur frá mjer tímanum. En þið lifið allir, eins og þið ættuð eilífðina í sjóði ykkar.

Ólafur

Hvíldin og vinnan verður að vera samfara. Mundu eftir því, að það er skylda þín gagnvart þeim, sem þjer þykir vænt um, að gæta að sjálfum þjer.

Loftur

óþolinmóður.

Það er gagnslaust, að eyða fleiri orðum. Við verðum , hvort sem er, aldrei á eitt sáttir.

Sest við borðið, opnar bókina.

Ólafur

Jeg ætlaði að vara þig við. Faðir þinn hefur mikið vald, en það eru takmörk fyrir því eins og öðru. Það getur orðið þjer hættulegt, ef biskupinn heyrir fleipur vinnufólksins.

Loftur

Þú ert óþreytandi, eins og lækur. Vinnufólkið getur ekki borið á mig neitt misjafnt. Þið sjáið ofsjónir, bæði þú og Steinunn. Jeg er leiður á ykkur.

Lýtur yfir bókina.