Fara í innihald

Blaðsíða:Harriet Beecher Stowe - Tómas frændi.djvu/52

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið staðfest

43

byggða líkama sínum, „þá er ég reiðubúinn til að taka á móti þeim; og eg á sjö syni, hver þeirra er 6 fet á hæð, og þeir munu sömuleiðis verða reiðubúnir að veita slíkum gestum móttöku. Heilsaðu þeim frá okkur, og segðu þeim, að þeir megi koma á hvaða stundu, sein þeir vilji, okkur stendur alveg á sama!“ Og hann strauk hendinni eptir höfði sér og rak upp hlátur mikinn.

Uppgefin og dauðþreytt, bæði á sál og líkama, dróst Elísa niður úr vagninum með barn sitt sofandi í fanginu.

Maðurinn brá ljósinu upp að andlitinu á henni og sagði eitthvert meðaumkunarorð, opnaði síðan dyr á litlu hliðarherbergi, og bað hana inn að ganga; hann kveikti ljós, setti það á borðið, og sneri sér svo að Elísu. „Vertu öldungis óhrædd, stúlka mín; komi hingað hver, sem koma vill, eg er við öllu búinn,“ sagði hann og benti á þrjár öflugar byssur á arinhyllunni, „og flestir, sem þekkja mig, vita líka að það er ekkert hollt að reyna til að ná fólki burt úr mínum húsum, þegar eg vil það ekki; farðu nú að sofa, alveg eins róleg, eins og hún móðir þín væri að svæfa þig.“ Svo fór hann út og lokaði hurðinni á eptir sér.

Bird sagði nú sögu Elísu í fám orðum. Jón hlýddi á frásögu hans með hinni mestu eptirtekt og hluttekningu.

„Þú ættir að bíða hér til þess er birtir,“ sagði hann við Bird. „Eg skal vekja gömlu konuna, og biðja hana um að hafa rúm til reiðu handa þér, það tekur engan tíma.“