Fara í innihald

Blaðsíða:Rímur af Núma kóngi Pompilssyni (1835).djvu/142

Úr Wikiheimild
Þessi síða hefur verið prófarkalesin

138

23. Gæddue hóli, en gædſku midur, í Gauta kjóla hríng, heldur ſjóli herinn vidur, á háum ſtóli þíng.

24. Rómúls laungu rædum hlýda, reckar ſtraungu þar; njótar ſlaungu nætur bida; nóg mannþraungin var.

25. Gégnum rekinn gilfi verdur, geiri frekum þá, heli tekinn, heilla ſkérdur; holund lekur blá.

26. Hann ſem bródurs heitu byrgdi, hendur blódi med, og Taſa hródur-háan myrdi, hníga ſlód á réd.

27. Klókir dreingir felur finna, fúlu reingi þá; hvør á þeingil vann ad vinna, vita einginn má.

28. Saman ſpann og ſøgu nýa, ſægur granna þá, ad væri hann til himin-Día, hafinn ranni frá.

29. Qviriníus hann ſkal heita, himinſkýum á, Rómum því hann vørn má veita, ef vopna lýir þrá.

30. Vakna þrætur þúngra nauda, þollum mætu brands, hvur ſkal ſætid erfa auda, eptir gætir lands.

31. Herſilíu á tróni tídir, tign ſpánýa fá, en hún má flýa hrædd um ſídir, hrakinn býnum frá.