Heimskringla/Ynglinga saga/35
Útlit
Önundur konungur fór milli búa sinna á einu hausti með hirð sína og fór þangað sem kallað er Himinheiður. Það eru fjalldalir nokkurir þröngvir en há fjöll tveim megin. Þá var mikið regn en áður hafði snæ lagt á fjöllin. Þá hljóp ofan skriða mikil með grjóti og leiri. Þar varð fyrir Önundur konungur og lið hans. Fær konungur bana og mart lið með honum.
Svo segir Þjóðólfur:
- Varð Önundr
- Jónakrs bura
- harmi heftr
- und Himinfjöllum,
- og ofvæg
- Eistra dólgi
- heift hrísungs
- að hendi kom,
- og sá frömuðr
- foldar beinum
- Högna hrörs
- um horfinn var.