Landnámabók/82. kafli

Úr Wikiheimild
Landnámabók
82. kafli

Þorsteinn leggur son Bjarnar blátannar fór úr Suðureyjum til Íslands og nam lönd öll fyrir norðan Horn til Jökulsár í Lóni og bjó í Böðvarsholti þrjá vetur, en seldi síðan löndin og fór aftur í Suðureyjar.

Rögnvaldur jarl á Mæri, son Eysteins glumru Ívarssonar Upplendingajarls, Hálfdanarsonar hins gamla; Rögnvaldur átti Ragnhildi, dóttur Hrólfs nefju. Þeirra son var Ívar, er féll í Suðureyjum með Haraldi konungi hinum hárfagra. Annar var Göngu-Hrólfur, er vann Norðmandi; frá honum eru Rúðujarlar komnir og Englakonungar. Þriðji var Þórir jarl þegjandi, er átti Álöfu árbót, dóttur Haralds konungs hárfagra, og var þeirra dóttir Bergljót, móðir Hákonar jarls hins ríka.

Rögnvaldur jarl átti friðlusonu þrjá; hét einn Hrollaugur, annar Einar, þriðji Hallaður; sá veltist úr jarlsdómi í Orkneyjum.

Og er Rögnvaldur jarl frá það, þá kallaði hann saman sonu sína og spurði, hver þeirra þá vildi til eyjanna. En Þórir bað hann sjá fyrir um sína för. Jarlinn kvað honum vel fara, en kvað hann þar skyldu ríki taka eftir sinn dag.

Þá gekk Hrólfur fram og bauð sig til farar. Rögnvaldur kvað honum vel hent fyrir sakir afls og hreysti, en kveðst ætla, að meiri ofsi væri í skapi hans en hann mætti þegar að löndum setjast.

Þá gekk Hrollaugur fram og spurði, ef hann vildi, að hann færi. Rögnvaldur kvað hann ekki mundu jarl verða. „Hefir þú það skap, er engi styrjöld fylgir; munu vegir þinir liggja til Íslands; muntu þar göfugur þykja á því landi og verða kynsæll, en engi eru hér forlög þín.“

Þá gekk Einar fram og mælti: „Láttu mig fara til Orkneyja; eg mun þér því heita, er þér mun best þykja, að eg mun aldri aftur koma þér í augsýn.“

Jarlinn svarar: „Vel þyki mér, að þú farir brutt, en lítils er mér von að þér, því að móðurætt þín er öll þrælborin.“

Eftir það fór Einar vestur og lagði undir sig eyjarnar, sem segir í sögu hans.

Hrollaugur fór þá til Haralds konungs og var með honum um hríð, því að þeir feðgar komu eigi skapi saman eftir þetta.