Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Þú hefur vökvað karltuskuna mína

Úr Wikiheimild

Snið:Header Það bar til hjá einni ríkri konu um haust að tómur askur sem hún þekkti ekki stóð á búrhillu hennar eitt kvöld. Hún fyllti hann af volgri nýmjólk og lét hann í sama stað aftur. Um nóttina hvarf hann, en kvöldið eftir var hann kominn aftur tómur og fyllti konan hann. Þetta gekk allan veturinn. Á sumardagsmorguninn fyrsta svaf konan í rúmi sínu. Hana dreymdi að kona kom á gluggann og sagði: „Hafðu það sem ég legg hér fyrir það þú hefir vökvað karltuskuna mína í vetur.“ Hún fór burt, en konan vaknaði og fann við gluggann ábreiðu svo fallega að hún hafði aldrei séð eins góðan dúk og átti hún hana lengi síðan. Úti er sagan.