Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Helgisögur/Ýsan

Úr Wikiheimild

Snið:Header Einu sinni ætlaði fjandinn að veiða fisk úr sjó. Þreifaði hann þá fyrir sér og varð fyrir honum ýsa. Hann tók undir eyruggana og sér þar enn svarta bletti á ýsunni. En ýsan tók viðbragð mikið og rann úr hendinni á fjanda, og er þar nú rákin svört eftir sem neglurnar runnu.