Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Helgisögur/Skrattinn fór að skapa mann

Úr Wikiheimild

Snið:Header Djöfullinn vildi ekki verða minni en guð, fór til og ætlaði að skapa mann. En sú tilraun fórst honum ekki hönduglega því í staðinn fyrir að skapa mann varð kötturinn úr því og þó vantaði á hann skinnið. Sankti-Pétur aumkvaðist þá yfir þessa sköpun og skapaði skinnið á köttinn sem hér segir:

„Skrattinn fór að skapa mann,
skinnlaus köttur varð úr því;
helgi Pétur hálpa vann,
húðina færði dýrið í.“[1]
  1. Aðrir (Norðlendingar) hafa vísuna þannig:
    „Skrattinn fór að skapa mann
    skringilega með hár og skinn
    andanum kom hann ekki í hann,
    úr því varð þá kötturinn.“
    [Enn hafa aðrir síðasta vísuorðið: „átti að heita Þórarinn.“]