Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Ég ætlaði ofan hvort sem var

Úr Wikiheimild

Snið:Header Einu sinni ætlaði kerling ofan lúkugatið og fram í baðstofu. En í stiganum skriðnaði henni fótur, stakkst á höfuðið og hálsbrotnaði. En í fluginu heyrðu menn til kerlingar: „Ég ætlaði ofan hvort sem var.“ Þetta er síðan haft að máltæki ef einhverjum ferst hrapallega og lætur sér ekki bilt við verða: „Ég ætlaði ofan hvort sem var.“