Fara í innihald

Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Náttúrusögur/Regla um að leita að grösum eða steinum

Úr Wikiheimild

Snið:Header Nær þú vilt leita að grösum og steinum ber á þér Venerisjurt, surtarbrand, gráurt, vax og álun svo álfar villi ekki sjónir fyrir þér, undir sólaruppkomu því um hana liggja allir steinar lausir á jörðu, en þeirra er helzt að leita við sjó þar sem eru rauðir sandar. Má þá þar taka um áðursagðan tíma; sumir eru á fjöllum uppi og má þá með sama hætti finna. En páskadags- og hvítasunnumorgun halda sumir gott að steinum leita, en að grösum Jónsmessunótt. Annars er það bezt þá þau eru fullvaxin.