Fara í innihald

Vísur Vatnsenda-Rósu

Úr Wikiheimild
Vísur Vatnsenda-Rósu
Höfundur: Rósa Guðmundsdóttir
Til eru sögusagnir um að Rósa hafi ort þessar vísur til Páls Melsteðs síðar amtmanns, en líklegra er að þær séu safn vísna frá mismunandi tímabilum.
Augað mitt og augað þitt,
og þá fögru steina
mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veizt, hvað eg meina.
Trega eg þig manna mest
mædd af tára flóði,
ó, að við hefðum aldrei sést,
elsku vinurinn góði.
Langt er síðan sá eg hann,
sannlega fríður var hann,
allt, sem prýða mátti einn mann,
mest af lýðum bar hann.
Engan leit eg eins og þann
álma hreyti hjarta.
Einn guð veit eg elskaði hann
af öllum reit míns hjarta.
Þó að kali heitan hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal eg gleyma þér.
Augað snart er tárum tært,
tryggð í partast mola,
mitt er hjartað sárum sært,
svik er hart að þola.
Beztan veit eg blóma þinn,
blíðu innst í reitum.
Far vel Eyjafjörður minn,
fegri öllum sveitum.