Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Ævintýri/Sagan af Mjaðveigu Mánadóttur

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1864) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Sagan af Mjaðveigu Mánadóttur

Svo er sagt að í fornöld hafi ráðið fyrir ríkjum konungur sá er Máni hét og hafi átt með drottningu sinni þá dóttir er Mjaðveig hét, sem var snemma að flestum kvenlegum listum búin, og svo lætur konungur reisa henni virðuglega skemmu og setti henni fjölda af þjónustumeyjum.

En sá hryggðaratburður kom fyrir að drottninguna móðir Mjaðveigar tók sótt þá er leiddi hana til bana, en eftir hennar andlát hryggist konungurinn svo mjög að hann nálega leggst í rekkju afskiptalaus. En með því ráðgjöfum hans þykir til óefnis horfa þá ráðleggja þeir honum að leita sér sæmilegs kvonfangs svo konungur ræður það af að hann sendir tvo sína æðstu ráðgjafa með fríðu föruneyti til bónorðsfarar, og sigla þeir af landi burt. En þeir komust í hafvillu og vissu ei hvar þeir vóru eða hvað halda skyldi, þar til um síðir þeir sáu land og héldu sínum flota þar að og stigu af skipum á land, en þeir þekktu það ekki; og ganga þeir nú á eyðimörkina því þeir voru að leita að mannabyggðum, en fundu þær öngvar. En um síðir heyra þeir hörpuslátt svo fagran að þeir þóttust ei fyrr slíkan heyrt hafa, og ganga þeir nú á hljóðið þar til þeir sjá eitt lítið tjald er var úr silki ofið; og hraða þeir ferðum þangað og sjá í tjaldinu sitja á stóli gullbúnum eina konu er stillir þann fagra hörpusöng sem þeim hafði þangað vísað, og eitt stúlkubarn hjá henni.

En þeir heilsa henni, en svo bilt verður henni þegar hún sér mannflokkinn að hún missir hörpuna og nálega fellur í ómegin, en strax sem hún kom til sjálfrar sinnar spyr hún þá á hvaða ferð þeir séu eða því þeir séu þar komnir, en þeir kváðust hafa ratað í hafvillur, en hafa í fyrstu verið sendimenn Mána konungs að leita honum kvonfangs því drottning hans sé önduð, en hann berist illa af missirnum. Þess vegna óska ráðgjafarnir að hún vildi segja þeim hvurnin á högum hennar stæði því þeir kváðust hafa fengið góðan þokka á henni, en konan gjörði sem þeir beiddu og kvaðst hafa verið drottning eins göfugs konungs hér á landi og hefði óflýjandi her eytt landið, en drepið konunginn, og hefði það verið tilgangur þess hersforingja að eignast ríkið og sig, en það kvað hún [sig] ekki hafa viljað og sagðist þess vegna hafa flúið með dóttur sína hingað á eyðimörkina og ætlað að láta hér fyrirberast. En ráðgjöfum þótti vel á öllu þessu standa því þeim þótti Máni konungur vel sæmdur af slíkum kosti og biðja þeir nú konunnar Mána til handa, en hún tekur því seinlega, kvaðst ekki hafa um giftingar verið að hugsa, en samt fyrir þeirra fríðar fortölur lætur hún til leiðast, og stíga þeir nú á skip og hún með þeim og siglir allt bezta byr heim í ríki Mána konungs. En þegar þeirra sigling sést lætur konungur aka sér í vagni ofan til stranda og strax sem hann sér sína festarkvinnu hverfur honum öll sorg, og heldur síðan heim til borgar og lætur búa til verðuglegrar brúðkaupsveizlu sem yfir stendur í hálfan mánuð, en að henni endaðri fer konungur í leiðangur að taka skatt af löndum sínum.

En nú víkur sögunni til Mjaðveigar konungsdóttur þar sem hún sat í skemmu sinni, að stjúpa hennar kemur að máli við hana og segir að sér leiðist nú heima í þessu fámenni og sagðist því vilja ganga út af borginni að skemmta sér og biður Mjaðveigu með sér fara, og svo gjörði hún, en drottning lætur með sér fara stúlku þá er hún nefndi dóttur sína og ráðgjafarnir áður sáu í tjaldinu hjá henni, og ganga þær nú þrjár saman og er nú drottning æði vingjarnleg við stjúpdóttur sína, en þá þær eru komnar langt frá borginni biður drottning Mjaðveigu að lofa dóttur sinni að hafa stakkaskipti, svo Mjaðveig lofar stelpunni að fara í sinn kyrtil, en fer sjálf í stelpunnar búning. Þá mælti hin leiða drottning: „Nú mæli ég um og legg á að dóttur mín fái allan svip og yfirlit Mjaðveigar svo hana þekki enginn fyrir aðra.“ En þær mæðgur binda Mjaðveigar höndur og fætur og skilja hana svo þar eftir, en fara sjálfar heim til borgar og setur drottning dóttur sína í kastala Mjaðveigar sem þá allir þenktu hana sjálfa vera, en skemmumeyjum þótti hún heldur hafa skipt geðslagi við þá skemmtigöngu með drottningu þó þær gæti ei neitt grunað og ekkert vissu þær um þá útlendu stúlku sem með drottningu þangað kom, gjörðu sér heldur ekkert far þar um.

En frá Mjaðveigu konungsdóttur er það að segja að hún liggur nú eins útleikin og fyrr var sagt, en hún sofnar af hryggð og örvæntingu. Þá dreymir hana að móðir hennar sálaða kemur til hennar og talar til hennar aumkvunarorðum og leysir af henni fjötrana og fær henni einn dúk sem henni sýnist matur á vera, en sagði að hún skyldi aldrei af honum ljúka og varast að láta nokkurn sjá hann, en gæta að sér fyrir stjúpu sinni og dóttur hennar, og þá vaknaði Mjaðveig og var þá allt eins og hana dreymdi.

En frá drottningu er það að segja að hana grunar að Mjaðveig muni enn vera á lífi. Þess vegna sendir hún dóttur sína leynilega að gæta að högum hennar og finnur hún Mjaðveigu og sér að nokkur umskipti eru orðin á kjörum hennar. Þess vegna beitir hún flærðarbrögðum til að vita hvurnin á þeirri umbreytingu standi og segir við Mjaðveigu að illa hafi móður sín gjört þegar hún hafi þannig að farið að svíkja hana, og segist nú vilja vera með Mjaðveigu í útlegðinni og kvað að þær mundu geta rétt hluta sinn þegar konungur aftur heim komi og segir að nú skuli það sama yfir þær báðar drífa, en Mjaðveigu líkar illa þessi ræða stelpunnar, en má þó til með að láta það svo vera. En eftir nokkurn tíma liðinn leggur stelpan sig niður og þykist fara að sofa, en þegar Mjaðveig heldur að hún sé sofnuð snýr hún lítið afleiðis, tekur dúkinn og fer að borða, en nú hafði hin illa stúlka dóttir drottningar náð áformi sínu, því hún sprettur upp, rífur dúkinn af Mjaðveigu og snýr heim á leið og sagði að aldrei skyldi Mjaðveigu þessi matur að gagni koma, og er nú Mjaðveig lítið betur á sig komin en fyrr og ráfar nú hér og hvar þar til hún sofnar af þreytu og leiðindum. Þá dreymir hana að móðir hennar kemur sem fyrr og segir að óvarlega hafi hún farið, en fyrst nú sé svo komið þá skuli hún ganga beina leið til sjóar og þá muni hún sjá tanga út í sjóinn og einstig út í hann og þar finna lítið hús sem muni læst vera, en lykillinn standi í hurðu. Þá skuli hún ganga þrisvar réttsælis og þrisvar rangsælis í kringum húsið og taka í hvurt sinn í lykilinn, þá muni húsið opnast. Þar skuli hún fyrst um sinn vera og muni henni þar ekki leiðast, og enn sagði hún henni að þar göluðu gaukar, þar spryttu laukar og þar fari hrútur úr reyfi sínu. Og nú vaknar Mjaðveig og gengur þá leið sem henni var í drauminum vísað og fór allt eins og henni hafði verið fyrir sagt, og þótti henni þar hvur dagurinn öðrum skemmtilegri.

En svo bar við þegar hún einu sinni gekk upp á land að skemmta sér að hún sér skipaflota sigla þar nálægt landi og stefndu til hafna; en við þessa sjón verður hún ákaflega hrædd og hleypur sem ákafast í skála sinn, en þá losnaði á henni annar skórinn og týndi hún honum á hlaupunum, en hann var úr gulli gjörður. En fyrir skipum þessum réði einn göfugur konungsson sem þess erindis sigldi þar að landi að biðja Mjaðveigar Mánadóttur, en þegar hann gengur frá skipum sínum til borgar finnur hann kvenskó úr gulli svo liðlegan að hann hét því að eiga þá stúlku sem þessi skór er af, og heldur hann nú leið sína til borgar og biður Mjaðveigar konungsdóttur sér til handa, en segist samt hafa heitið að eiga öngva nema þá sem ætti skó þann er hann hefði fundið þá er hann hefði gengið hér til borgarinnar, en drottningin biður um að sjá skóinn og afhendir kóngsson hann henni, en hún segist hann gjörla þekkja, segir að Mjaðveig dóttur sín – sem hún þá svo kallar – hafi honum týnt einu sinni þegar hún hafi verið á skemmtigöngu og fari svo löngum fyrir unglingunum, og gengur hún nú til dóttur sinnar og segir henni hvurnin komið sé og fer með hana í eitt afhús til að láta á hana gullskóinn. En hann komst þá ekki upp á hálfan fótinn; þá nemur drottning af bæði tær og hæl og setur svo upp skóinn, en stelpunni þykir móður sín harðlega við sig gjöra, en drottning sagði að til mikils væri að vinna að eiga kóngssoninn, og býr hún hana nú í bezta skart og leiðir síðan í höll og sýnir kóngssyni að skórinn er mátulegur og sýnist honum þá svo vera. En nú að nýju biður kóngsson Mjaðveigar Mánadóttur sér til handa og er því máli vel tekið, en kóngsson kvaðst vilja sigla með hana í sitt ríki og koma svo seinna og bjóða til sinnar veizlu og fer nú svo. En þegar hann siglir þar nálægt sem hús Mjaðveigar kóngsdóttur er heyrir hann fuglakvak svo mikið að [hann] fer að veita því eftirtekt – því hann skildi fuglamál, og heyrist honum þeir segja:

„Í stafni situr Höggvinhæla,
fullur skór með blóð;
hér á landi er Mjaðveig
Mánadóttir,
miklu betra
brúðarefni.[1]

Snúðu aftur, kóngsson.“

En í fyrstu ætlar hann ekki að trúa þessu fuglafleipri. Þó fer hann að aðgæta og sér að eins var og þeir sögðu með stelpuna, og þá tekur hann mælispjald og leggur á herðar stelpunni og varð hún þá að stórvaxinni og ljótri tröllkonu, og mátti hún þá til með að segja allt satt um sig og drottningu móður sína, en að því búnu drepur hann stelpuna og saltar hana niður, en kjötið af henni fyllti tólf tunnur, og lætur kóngsson það allt á eitt skip sem ekkert var á nema stampur af púðri. En eftir þennan starfa skýtur hann út báti og rær til lands og finnur húsið og eftir tilsögn fuglanna getur hann opnað það, en hann sér þar eina stúlku forkunnar fagra sem hann spyr að nafni, en hún kvaðst heita Mjaðveig og vera dóttir Mána konungs, en hún kvaðst hér í leyni vera sökum vonzku stjúpu sinnar. En nú segir konungsson henni hvurnin komið sé og enn sýnir hann henni gullskóinn og setti hann sjálfur upp á hana og sér að hún hefur annan þar á móti. Nú þykir kóngssyni sér hafa þessi stúlka föstnuð verið þó hann hafi verið leyndur sannleikanum, og eftir Mjaðveigar vilja tekur hann hana og flytur á skip með sér og fer nú af klókindum með skip sín á leynivog einn og dvelur þar um stund, en siglir svo öllum flotanum á hafnir borgarinnar og fer heim til konungs hallar bjóðandi honum ásamt drottningu til sinnar brúðkaupsveizlu, og er konungur fús að fara, en drottning ekki; kvaðst hún ei vön siglingum og vilja heldur heima vera en fara slíka langferð. En konungsson sagði að dóttur hennar mundi betur kunna við að hún neitaði ekki þessu boði og er hann að telja um fyrir drottningu þar til hún leiðist til að fara, og er þeim svo öllum ekið í vagni ofan til strandar og stíga þau á skip og sigla í haf. En á leiðinni tekur drottningu svo mikil hugsýki að hún sinnir öngvum manni, en kóngsson biður hana einslega að segja sér hryggðarefnið sem hún var þó treg að gjöra, en leiðist þó til um síðir, og segir hún að svo sé heilsu sinni varið nú á þessari reisu að hún hafi ekki lyst að borða þegar aðrir gjöri það og sé það helzt af sjósýki. Þess biður hún kóngsson að hann vildi ráða bót á slíku, en hann kvaðst það ekki geta, sagðist ekkert hafa svo lagað er hún gæti haft not af. En hann sagði að hér á einu skipi væri nokkuð af saltkjöti, en það væri hrátt og hefði hún af því engin not, en drottning kvaðst af því góð not hafa mundi; sagðist hún sjálf geta kokkað það handa sér, og verður hún nú glöð í bragði, en biður kóngsson yfir þessum smámunum þegja.

En nú er sagt að drottning hafi étið eina tunnu á degi hvurjum og hafi jafnan verið hin ljótasta tröllskessa á meðan hún neytti matar síns, en tekið hamaskipti á eftir, og gengur þetta í ellefu daga, en á hinum tólfta degi þegar hún er að éta seinustu tunnuna sýnir kóngsson Mána konungi hennar ljóta aðgang og segir honum hvað oft hún hafi þannig verið á þeirri ferð. En konungur verður hissa er hann sér sig hylltan af slíkum óvættum, og hleypa nú þeir konungur eldi í það fyrrnefnda púður er á var ketskipinu og splunderast það allt og fær hin vonda drottning eða tröllkona þar bráðan bana. Eftir hennar ljótu ævilok biður Máni konungur kóngsson að segja sér hvurnin á þessum ósköpum standi, en hann gjörir svo og leiðir hann síðan til Mjaðveigar, og segir hún honum ljóslega frá öllum illverkum og svikum þeirra mæðgna, en konungur fellur í undran af öllu þessu.

En nú siglir allt í ríki kóngssonar og er þar drukkin bæði fagnaðar- og brúðkaupsveizla sem yfir stendur í heilan mánuð, en að henni endaðri er Máni konungur út leiddur með virðuglegum gjöfum og siglir í sitt ríki og er þar konungur til ellidaga, og er hann svo úr þessari sögu.

En af þeim nýgifta konungssyni er það að segja að hann tekur konungdóm eftir föður sinn, og líður þannig eitt ár að ekkert ber til sögunnar utan Mjaðveig drottning elur eitt fagurt sveinbarn, en eftir þann tíma liðinn gengur hún til laugar með einni sinni þjónustustúlku, en þegar drottning er þangað komin vantar hana sápu svo hún sendir sína þernu að sækja hana, en bíður ein við laugar. Þá kemur til hennar kona og heilsar henni virðulega, en drottning tekur kveðju hennar. En konan biður drottningu að hafa við sig stakkaskipti og það gjörir Mjaðveig. Þá mælir konan um og leggur á að hún fái allan svip drottningar, en Mjaðveig fari til bróður síns og hvarf hún á þeirri sömu stundu, en enginn veit um drottningarumskiptin. En eftir þetta fellur öllum illa við drottningu sem von var.

Og svo er sagt þá er konungur tók Mjaðveigu úr skála sínum að honum hafi þótt húsið svo yndislegt að hann hafi með kunnáttu sinni numið það á burt og hafi það síðan verið hjá sal drottningar og hafi þar sprottið laukar og galað gaukar og farið hrútur úr reyfi sínu á meðan allt fór vel fram, en nú skiptist svo um að

„ekki gala gaukar,
ekki spretta laukar
og ekki fer hrútur úr reyfi sínu
og aldrei þegir sá ungi sveinn
sem í vöggu liggur

og allt sýnist aflaga ætla fara í ríkinu.“

En svo bar við einn dag að hjarðarsmali konungs gengur nálægt sjó. Sér hann þá hvar undan hömrum nokkrum kemur upp glersalur og í honum einn kvenmaður svo líkur Mjaðveigu drottningu að hann kvað með sjálfum sér ekki mundi þekkja þær að, en um salinn var festi ein úr járni gjörð og í hana hélt einn ljótur þursi sem kippti þeim nefnda sal samstundis niður aftur, en maðurinn verður hissa við þessa sjón og nemur staðar hjá læk einum. En þá hann er þar í þönkum sínum sér hann barn taka vatn úr læknum, en hann gefur barninu fingurgull og verður það glatt við gjöfina og hverfur inn í stein er þar var skammt frá. En að vörmu spori kemur út dvergur og heilsar manninum, þakkandi honum fyrir barn sitt og spyr hann hvað hann vilji af sér í staðinn þiggja, en maðurinn biður hann að segja sér hvurnin á því standi er hann hafi séð koma undan sjóarhömrunum, en dvergurinn sagði að það væri Mjaðveig drottning sem í glersalnum sé og sé hún hyllt af óvættum, en í hennar stað sé komin ein tröllskessa og sé hún systir þess risa er hann hafi séð í festina halda, og enn segir dvergurinn að þursinn hafi gjört það eftir beiðni Mjaðveigar að lofa henni fjórum sinnum á land að koma, sem „með þeim hætti sem þú sást,“ og skuli það vera henni til frelsis ef nokkur væri svo heppinn að geta á þessum tíma leyst hana úr hans ljótu klóm, „en nú er hún búin þrisvar á land að koma og verður það í síðsta sinn sem hún upp kemur, á morgun.“

En nú biður maðurinn dverginn að leggja sér góð ráð til að ná drottningu úr ánauðunum og fær dvergurinn honum eina öxi og sagði að hann skyldi höggva á festina á morgun þegar salurinn upp komi, og nú bíður maðurinn í steininum af um nóttina. En daginn eftir fer hann þangað sem salurinn er vanur að koma upp og eftir lítinn tíma liðinn kemur salurinn upp á hamrana, en maðurinn er nú ekki lengi og heggur á festina og gekk honum það vel, en nú kemur risinn upp og vill drepa þann sem á strenginn hafði höggið, en dvergurinn kemur með lítinn poka er hann sáir úr yfir risann og verður hann þá blindur svo hann hrapar ofan fyrir klettana og lætur þar líf sitt. En þeir fara með Mjaðveigu í steininn til dvergsins og bíður hún þar.

En þeir fara heim til borgar og leggja mælispjald á drottninguna sem þá þótti vera, en hún verður að ljótri tröllkonu og neyða þeir hana til að segja ævisögu sína, og segir hún þá hvurnin hún fór með Mjaðveigu og hvar bróður sinn hafi bústað og enn segir hún að seinni drottning Mána konungs hafi verið systir þeirra. Þess vegna segist hún hafa gert þetta í hefnda skyni við Mjaðveigu drottningu. En nú verður konungur ævarreiður og lætur velja þeirri ófreskju háðuglegan dauða.

En nú spyr smalamaður konung að með hvurju hann mundi vilja launa ef nokkur væri svo fær að leysa drottningu úr þeim téðu ánauðum, en konungur kvaðst mundi sæma hann stórum fégjöfum og þar að auki jarlsnafni og landforráðum. En smalamaður var ekki lengi að sækja drottningu og færir hana konunginum og verður þar meiri fagnaðarfundur en frá megi segja, og er drottning kemur til rólegheita

„þá gala gaukar
og þá spretta laukar
og þá fer hrútur úr reyfi sínu,
þá þegir ungur sveinn
sem í vöggu liggur,“ –

og upp frá þessum tíma lifir drottning í farsæld til ellidaga.

Og endast þannig sagan af Mjaðveigu Mánadóttur.

  1. Dr. Maurer hefur vísuna svo eftir frú [Guðrúnu Stefánsdóttur] Brynjúlfsson í Kaupmannahöfn:
    „Situr í stafni
    Höggvinhæla,
    fullur er skór af blóði;
    heima situr hún Mjaðveig
    Mánadóttir,
    hálfu betra
    brúðarefni.“
    Og enn eru fleiri breytingar á þessari vísu; mér er hún þannig í barnsminni:
    „Situr í stafni Höggvinhæla,
    fullur skór með dreyra;
    skömm er að brúði.“