Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kímnisögur/Beiskur ertu nú, drottinn minn

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1864) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
„Beiskur ertu nú, drottinn minn“

Einu sinni var kerling til altaris. Presturinn hafði ekki góðan augastað á kerlingu og er sagt hann gjörði það af hrekk, en sumir segja hann gjörði það af ógáti, að hann gaf kerlingu brennivín í kaleiknum. En kerling lét sér ekki bilt við verða og sagði það sem síðan er að orðtaki haft: „Og beiskur ertú nú, drottinn minn.“ Kerlingin hélt það væri fyrir sinna synda sakir að messuvínið væri svo beiskt.