Álfar

Úr Wikiheimild
Lífið hún sá í ljóma þeim
ljósinu af bláum augum tveim.
Álfar sjá um allan heim,
enginn er svona fríður.
Álfaþjóð í brúðardansinn býður.


Glóir í ljóma hinn gamli bær
glaðar er sól á vori,
rjettir arminn út og hlær
álfur í hverju spori.
Hver er röddin sæta sú,
sem að eyrum líður?
Aldni heimur, ert það þú?
orðinn svona fríður.
"Kondu, kondu, kondu nú",
kallar rómur þýður.
Álfaþjóð í brúðardansinn býður.