Íslands minni
Útlit
Íslands minni
Höfundur: Bjarni Thorarensen
Höfundur: Bjarni Thorarensen
- Eldgamla Ísafold,
- ástkæra fósturmold,
- fjallkonan fríð,
- mögum þín muntu kær,
- meðan lönd gyrðir sær
- og gumar girnast mær,
- gljáir sól á hlíð.
- Hafnar úr gufu hér
- heim allir girnumst vér
- þig þekka' að sjá;
- glepur oss glaumurinn,
- ginnir oss sollurinn,
- hlær að oss heimskinginn
- Hafnar slóð á.
- Leiðist oss fjalllaust frón,
- fær oss oft heilsu tjón
- þokuloft léð;
- svipljótt land sýnist mér
- sífellt að vera hér,
- sem neflaus ásýnd er
- augnalaus með.
- Öðruvísi´ er að sjá
- á þér hvítfaldinn há
- heiðhimin við;
- eða þær krystallsár,
- á hverjar sólin gljár,
- og heiðar himinblár,
- hájökla rið.
- Eldgamla Ísafold,
- ástkæra fósturmold,
- fjallkonan fríð,
- ágætust auðnan þér
- upp lyfti, biðjum vér,
- meðan að uppi er
- öll heimsins tíð.