Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Útilegumannasögur/Þórir og Skúmur

Úr Wikiheimild
Fara í flakk Fara í leit
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Þórir og Skúmur

Þórir var og útilegumaður; hann hafðist við á Þóristungum, millum Köldukvíslar og Tungnaár, og lifði af veiði í Fiskivötnum. Af hans nafni eru dregin þessi örnefni: fjallið Þóristindur, lækurinn Þórisós, Þórisvatn, og svæðið sem kallað er Þóristungur þó það komi ekki heim við þá sögusögn sem segir að þórisvatn dragi nafn af Þóri syni Þórálfs þess sem Ármanns saga getur um að hafi tryllzt. Skúmur var enn nefndur útilegumaður. Hann hafðist við í Skúmstungum, milli lækja tveggja fyrir vestan Þjórsá, og dregur svæðið nafn af honum.