Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Bóndinn á Kirkjubæjarklaustri

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Bóndinn á Kirkjubæjarklaustri

Á Kirkjubæjarklaustri bjó fyrrum bóndi einn sem ríkur var af sauðfé, og eitt haust þá hann réttaði kemur kerling á réttargarðinn og segir: „Feigt er fé þitt bóndi.“ Bóndi hafði á móti og sagði að allt mundi það ekki fara. Hún kvað það allt feigt utan eina á morauða. Um vorið féll hver kvik klauf hjá bónda þessum utan Morukolla ein. Varð honum þá svo skapbrátt að hann kastaði henni út á Skaftá í hroðavexti og hraktist ærin fyrir straumnum og náði loks landi í Hæðargarðsnesið og fæddi hún þar um vorið tvær gimbrar morauðar. Út af þeim átti bóndi að hafa grætt upp eins margt fé og hann hafði áður átt.