Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Draumur Jóhanns Halldórssonar

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Draumur Jóhanns Halldórssonar

Á jólaföstu 1843 dreymdi Jóhann kandídat Halldórsson, prófasts á Melstað Ámundasonar – var hann þá í Kaupmannahöfn – að hann þykist koma í kirkjugarðinn á Melstað. Þykir honum faðir sinn koma þar á móti sér glaður í bragði, rétta að sér höndina og segja: „Komdu með mér.“

Draumurinn þýddi það að Jóhann dó skömmu eftir eða á nýjársdag 1844; faðir hans deyði sumarið áður úr sóttinni sem þá gekk. Bar svo til að Jóhann kom inn á skipi á Ísafjörð og fór þaðan landveg norður, og er hann kom að Melstað var önd nýliðin upp af föður hans og veitti hann honum nábjargirnar. – Jóhann drukknaði af Löngubrú í Kaupmannahöfn.