Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Enn um andlát síra Hallgríms

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Enn um andlát síra Hallgríms

Síra Hallgrímur kvað seinni sálminn er hann kvað á banasænginni – hefir mér verið sagt – rétt áður en hann andaðist. Dró af honum áður en sálminum var lokið. Tók þá sá við er sálminn skrifaði og yfir honum vakti og kvað seinasta versið.