Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Gottskálk biskup grimmi

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Gottskálk biskup grimmi

Gottskálk biskup grimmi var hinn mesti galdramaður á sinni tíð; tók hann upp aftur svartagaldur er ekki hafði tíðkazt síðan í heiðni og skrásetti galdrabók þá er kallaðist Rauðskinna. Var hún skrifuð með gullnu letri og að öllu hin skrautlegasta; rituð var hún með rúnastöfum eins og allur galdur. Þessarar bókar unni biskup ekki neinum eftir sinn dag og lét þess vegna grafa hana með sér og engum kenndi hann alla kunnáttu sína. Þess vegna var hann öllum svo skæður í málum að hann gat glapið minni og huga manna og komið þeim til að gjöra það er hann gat gefið þeim sakir á. Í fyrstu hélt hann keypta njósnarmenn til að komast eftir hvort menn ætu kjöt á langaföstu, en svo fór að lokum að enginn vildi verða til þess að halda njósnir fyrir hann. Einn dugði þó bezt; enda hafði biskup kennt honum kukl og þar á meðal að bregða yfir sig hulinshjálmi; en þó kenndi hann honum ekki meira en svo að hann hefði í öllum höndum við hann.

Einu sinni á langaföstu kom njósnarmaður þessi að bæ bónda nokkurs og lagðist á baðstofugluggann; var dimmt mjög úti svo njósnarmaður gáði þess ekki eða þótti þess ekki þurfa að bregða yfir sig hulinshjálmi. En bóndi sá meira fram fyrir nefið á sér en nokkur vissi; sá hann þegar njósnarmaður kom og lagðist á gluggann; spurði hann þá konu sína hvar sauðarsíðan væna væri sem þau hefðu leift á sprengikvöld. Konan varð hrædd og spurði hvort hann vissi ekki hvað við lægi, en hann sagðist ekki hirða um það og skipaði henni að sækja síðuna. Þorði þá konan ekki annað en gjöra það; tók bóndi við síðunni og mælti: „Þetta er góður og feitur biti;“ tók síðan langan og oddmjóan kníf og rak í gegnum síðuna. Ljósið logaði dauft, en njósnarmaður grúfði sig niður að glugganum til að sjá allt sem glöggvast. Bóndi fór tómlega að öllu; bar hann síðuna hátt og virti hana fyrir sér á alla vegu, en hinn sá ekki knífinn. En þegar minnst vonum varði snýr bóndi sér að glugganum og lagði knífinum, er stóð í síðunni, gegnum skjáinn og í auga komumanns svo á kafi stóð, og mælti: „Berðu þennan bita þeim er sendi þig.“ Njósnarmaðurinn rak upp hljóð og féll ofan. Hafði bóndi af honum sannar sögur og dó hann síðan við mikil harmkvæli.

Bóndi tjáði mál sitt fyrir Jóni lögmanni Sigmundssyni. Komu þeir að biskupi varbúnum áður en hann hafði frétt afdrif sendisveins síns og þó hann þrætti þess að hann væri valdur að þessu sá hann þó ekki annað ráðlegra en að gjalda bónda mikið fé, en Jón lögmaður lét dæma þá alla réttlausa er lægju á gluggum. Frá þeim tíma gat biskup ekki neytt sín öðruvísi til að hafa fé af bændum en að hræða þá til útláta þegar hann sá það af fjölkynngi sinni að þeir höfðu verið slakir á föstuhaldinu og drepa fyrir þeim fénað með göldrum ef þeir létu ekki allt liggja í hans skauti. Aldrei ýfðist biskup þó við bónda þann er drap njósnarmann hans því hann vissi að þar kom hann ekki að tómum kofunum, en Jón lögmann ofsótti hann frá því hann studdi mál bónda, því hann kunni ekkert fyrir sér, og hætti ekki fyrr en hann hafði gjört hann félausan. Gramdi Jón sig þá í hel, en stefndi biskupi á dánardægri fyrir guðsdóm;[1] en við því gat biskup ekki séð þó fjölkunnugur væri því þá tók annar sterkari í taumana.

  1. Það er almennt talið að þeir Gottskálk biskup og Jón lögmaður dæju báðir sama árið, 1520.