Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Hallgrímur kveður til stúlku
Útlit
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Hallgrímur kveður til stúlku
Hallgrímur kveður til stúlku
Séra Hallgrímur Pétursson var kraftaskáld. Einu sinni var hann á ferð í Borgarfirði og kom þar að einum stórbæ og var þar um nótt. Hann var hvurki fríður né ríkmannlega til fara. Yngisstúlka þar á bænum fór að færa spott að honum um kvöldið. Hann sat á rúmi móts við hana. Þá kvað hann:
- Horfi ég nú á hendina á þér
- og hana fyrir mér virði.
- Enginn er sú sem af henni ber
- í öllum Borgarfirði.
- En eignast muntu argan þræl
- sem ekki er skóþvengs virði.
- Hvorki muntu heil né sæl
- hér í Borgarfirði.
Hann sá að reiðisvipur kom á stúlkuna. Þá bætti hann við:
- Vékstu fyrri vondu að mér,
- víf, en góðu eigi.
- Enginn maður unni þér
- upp frá þessum degi.
Hún hafði síðan enga eirð né ró í Borgarfirði. Var henni ráðlagt að fara þaðan og það gjörði hún, en aldrei varð hún vinsæl upp frá því og maðurinn hennar varð böðull og voru í þá daga hafðir til þess ómerkilegir menn.