Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Kross á kýrmölum
Útlit
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
Kross á kýrmölum
Kross á kýrmölum
12. júlí 1847 sagði móðir mín[1] mér frá því að þegar hún var ung og var hjá kúm sem voru að bera hefði hún alténd milli kálfs og hilda skorið hár úr kýrhalanum og lagt hárið í kross á malirnar á nýbærunni til þess að tilberinn þyrði ekki að henni. – Það er alkunnugt að aðferð tilberans er sú að hann leggur sig yfir kýrmalirnar og teygir ranana niður beggja megin til að sjúga kúna. Þessu átti nú hárkrossinn að varna.
- ↑ Þ. e. Margrét, móðir Jóns Norðmanns.