Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Galdrasögur/Silunga-Björn

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Silunga-Björn

Þess konar maður var Silunga-Björn sem fyrri er getið að hafi gengið í hóla, og sagt er það að hann hafi framið margs konar galdur annan og þótzt mikill af.

Einu sinni var hann staddur í Haukadal þegar óttalegt veður rak á; þá sagði hann: „Nú hefur einhver farið leiðina sína.“ Þetta var orð og að sönnu; því einmitt á sama tíma hafði maður hengt sig í Laxárdal.