Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Álfkonan í Miðdal

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Álfkonan í Miðdal

Á jólanóttina kom einu sinni kona inn í baðstofu í Miðdal; hún gekk að kertaljósi sem logaði á borðinu og horfði á það lengi og alvarlega unz einhver sagði við hana að hún mætti eiga kertið og fara með það. Konan gjörði það og hvarf síðan.