Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Huldufólk í Hengifossárgili

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Huldufólk í Hengifossárgili

Hengifossárgil heitir árgil eitt í Fljótsdal. Það hefur lengi verið trú manna að þar væri nóg huldufólk í. Fyrir nokkrum árum síðan vóru tveir menn á ferð neðan við gilið á eyrunum á nýársdag. Heyrðu þeir þá sunginn í klettinum hjá sér Grallarasálminn „Heiður sé guði himnum á“. Stóðu þeir við á meðan sálmurinn var sunginn út og að honum enduðum heyrðu þeir að hringt var lítilli bjöllu. Síðan fóru mennirnir burtu leið sína.