Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Kveðið með álfum

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Kveðið með álfum

Sigurður hét maður og var Pálsson; bjó hann í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Eitt haust lá hann til byrjar í Akureyjum. Reikar hann kvöld eitt út um Bæjareyna, kemur á hól þann er Álfhóll er kallaður og heyrir þetta kveðið þar inni:

Ali mírinn dansi flírinn
bímbsí lárinn dansar,
og stígur sonarkorn.