Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Nykur í Kappastaðavatni

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Nykur í Kappastaðavatni

Bjarni Jónsson drengur á Barði segir nú (1861) svo frá: Nú fyrir þrem árum var ég með Árna á Felli að smala nálægt Kappastaðavatni í Sléttuhlíð. Í vatninu er hólmi og sáum við að nálægt hólmanum kom tvívegis upp hvítgrár hestur upp fyrir bóga. Gátum við ekki skilið í að þetta gæti annað verið en nykur.