Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Presturinn í Möðrudal

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Presturinn í Möðrudal

Þess hefir verið getið að á fyrri dögum hafi prestur nokkur verið í Möðrudal á Fjalli. Hann átti bróður í sveit niðri er umboð hafði á jörð prestsins þar í nánd og færði hann prestinum afgjaldið af jörðinni. Eitt haust að vana kemur hann með þetta afgjald til bróður síns að Möðrudal. Var prestur þá einn eftir, en heimilisfólkið allt dautt, má vera í plágunni miklu. Prestur býður svo bróður sínum til kirkju um kvöldið og sitja þeir þar lengi áfram. Fylgir hann honum svo til baðstofu og skipar honum þar sæti. Þá heyrði hann í myrkrinu að fjölgar fólk í baðstofunni. Mælti þá prestur að það skyldi skemmta eftir vana. Tekur það þá til að fremja dansleika og kveðindisskap og er nú komumanni lítið um þetta gaman, því hann skelfur og titrar af ótta og hræðslu í bekknum. Þegar þetta fólk hafði lengi eftir sinni vild dansað þá býður prestur því ljós að kveikja og hætta þessum dansleik. Svo var það gert sem hann skipar, ljós á borð borið og fæða fram reidd, en hann sá þó engan mann. Neytir hann með presti mjög lítils, en drekkur þó hálfu minna. Þá var ljós eftir máltíð undan til rekkju borið. Vísar prestur honum þá til rúms. Fann þá komumaður af sér dregna sokka og skó. Prestur fer þá líka að hvílast. Eftir þetta koma tvær ungar og leikfullar stelpur að rúmi hans og vildu leika sér við hann, tóku til að kyssa og klappa honum. Varð honum mjög felmt við. Síðan tóku þær að rífa ofan af honum fötin, svo nú tekur til að versna og grána gamanið. Þá varð prestsbróðir svo hræddur að hann vissi varla hvar hann var og sagði að einhver veitti sér ónáðir, hann hefði hvorki frið né ró í rúminu. Prestur hrópaði af mesta megni og sagði að þær arna dubbur og hrakstelpur skyldu sjá manninn í friði og lofa honum að hafa hvíld og náðir. Heyrði hann þá að fólk háttaði í hverju rúmi. Ekki vildi honum svefnsamt verða um nóttina, því strax sem dagar fer hann á fætur með mesta flýti og út að kirkjudyrum. Gengur hann þar um gólf þar til presturinn kemur til hans og segir hann muni litlar náðir í nótt haft hafa, þar hann sé svo árla á fótum. Hann kvað það satt vera, segir sér þyki nokkuð óþægilegt og dauft þar að vera. Býður hann þá klerki með sér í byggð að fara, en hann vill ei þekkjast það, segir sér þyki þar nógu skemmtilegt og gott að vera. Hann þakkaði guði fynr að hann slapp þaðan og komst lífs af, skildi svo við bróður sinn. En þegar til Möðrudals var aftur komið eftir það var bærinn í eyði og sást enginn maður; þá var og klerkur líka horfinn og hefir ei síðan til hans spurzt.