Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Goðfræðisögur/Urðarboli

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Urðarboli

Við sjóinn austan undir Reynisfjalli er krókur nokkur sem kallaður er Bolabás og er um hann saga sú er nú skal greina: Það var trú manna að í Bolabás væri vættur einn sem kallaður var Urðarboli, og eru engar sögur um það hvörs kyns hann væri, en sagt er að hann hefði mannsmynd niður að mitti, en ekki man ég hvort neðri hlutinn átti að hafa líkzt sel eður nauti, en það var annað hvört. Hann hafði aðsetur í helli sem var niður við sjóinn, og hljóðaði ákaflega undir slæm austanveður ekki síður sumar en vetur, en sú átt stendur beint upp á Bolabás. Engum átti hann að hafa gjört illt og líka var sjaldgæft að sjá hann; þó er sagt að eitthvört sinn hafi maður verið á gangi upp á Reynisfjalli og heyrði Urðarbola hljóða ákaflega. Maðurinn var hvatvís og ófyrirleitinn, fór því með mesta flýti ofan og suður með fjalli til að sjá skepnu þessa; honum tókst það líka og átti hann að segja svo frá að kvikindi þetta hafi verið mjög svo aumlegt og ljótt og hafi sagt við sig að honum mundi verða það lítið til gæfu að kappkosta að skoða sig og síðan fór það inn í helli sinn. En sagt er að maðurinn hafi orðið lánlítill eftir þetta.

Fáum árum áður en ég kom að Vík vöktu tveir kvenmenn yfir túni um vortíma og ung stúlka með þeim sér til gamans. Annar kvenmaðurinn var frekur og ósvífinn og alþekkt að því alla sína tíð. Nú um nóttina tók Urðarboli að hljóða, en fyrrnefndur kvenmaður tók undireins til að herma eftir honum. Við það espaðist Urðarboli svo að þeim sem vöktu þótti sem hljóðið væri einlægt að færast nær og verða grimmlegra, og seinast heyrðist þeim sem hljóðið væri komið heim undir bæ. Þá beiddu hinar þessa að hætta að herma eftir því, hvað hún og gjörði, enda héldu þær að henni hafi ekki verið farið að finnast til, en þegar hún hætti að herma eftir, þá hætti líka Urðarboli undireins að hljóða. Ekki get ég borið á móti því að ég heyrði til Urðarbola eftir að ég kom hingað að Vík, en tveim árum síðar (ár 1829) hljóp fjarskalega mikið hlaup úr fjallinu rétt fyrir innan Bolabás og eftir það veit ég ekki til að heyrzt hafi til Urðarbola enda er nú sjórinn búinn að brjóta upp hellirinn hans svo hann er orðinn opinn í báða enda og ólíkur því sem áður var. Því verður ekki neitað að vættur þessi var til, en líkast virðist mér að það hafi helzt verið af sjóskrímslakyni með því ég veit eina sanna sögu um það að það hafi verið til hér í sjónum:

Þegar Ragnar Úlstrúp þjónaði Skaftafellssýslunum var bróðir hans Valdemar Úlstrúp hér með honum til skemmtunar. Hinn síðarnefndi var skotmaður frægur og listamaður með marga hluti. Þeir voru til húsa hér í Syðrivík. Eitt sinn skaut Valdemar sel; maðurinn stóð í fjörunni, en selurinn var á sundi út á sjó. Selurinn var dauðskotinn, og sendi Valdimar hundinn þeirra bræðra eftir honum, en hann réði ekki við selinn. Fór þá Valdemar sjálfur og ætlaði að sækja selinn, en sneri aftur allt í einu þegar hann átti skammt þangað sem selurinn var, og kom í land aftur. Var hann þá spurður hvað til hafi komið að hann fékkst ekki við selinn, en hann sagði að móti sér hefði komið sjóskrímsli bæði ljótt og mikið vexti og hann skyldi aldrei að nauðsynjalausu fara til sunds í þennan sjó.