Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Kreddur/Vísur af sólarháttum

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1864) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Vísur af sólarháttum

1.

Ársól gáruð og ský undir,
öll stór regn þann dag, þær stundir;
séu skýin þung og svört að morgni,
sést norðanstormur af horni.

2.

Ef ársól geisla greiðir,
geyst regn og vind brátt innleiðir;
mikið regn býr morgunroða,
minnst stríð og illviðri boða.

3.

Af sólsetri upp ef kunna
á loftið ský rauð að renna,
næsta dag blíðviðri boða,
ber það til eins af kvöldroða.

4.

Á vetur þá frost úr dregur,
oft gýs snjór drjúglegur,
utan svört ský sé þar meður,
svo varð dögg eður krapaveður.