Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Afdrif Íslendinga á Grænlandi

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Afdrif Íslendinga á Grænlandi

Maður bjó í Veiðifirði á Grænlandi er Ingjaldur hét (skrælingjar segja Ingilli). Hann átti marga sonu er allir voru kvæntir og bjuggu þar í dalnum umhverfis höfuðbólið; fólk þetta var vel kristið og hafði bæði kirkjur og kennifeður og stóðu búhagir þeirra með blóma. Um þessar mundir tók vesturströnd Grænlands að fjölbyggjast af þeim lýð sem vér köllum skrælingja, en sjálfir nefna þeir sig innuk (mannkynið). Hvort þeir eru komnir frá Ameríkuströndinni sem liggur þrjátíu mílur héðan, hvurra innbúa mál þeir tala, greinir ekki um í þessari frásögn.

Fjöldi þessara tók bólfestu á Nabaitsok skammt frá Veiðifirði og tóku að færa byggðir sínar ætíð meira suður eftir hvar vetrarríki þókti minna. Varð nú samgangur millum Veiðfirðinga og norðanmanna sem þó áttu lítt skap saman vegna siðferðismunar hinna kristnu og heiðnu sem ekki vildu láta telja sér sanna trú. Samt tóku nokkrir þessra sér bústaði við sjáarmál í Veiðifirði og reistu þar kofa sína og tjöld og lifðu á fiskiveiðum. Fer nú so fram um hríð að rígur var mikill, en réð þó hvörugur á aðra.

Það var þá einhvörju sinni að smásveinar Veiðfirðinga léku við ströndina að bogum sínum, en með landi fram reru skrælingjasynir kajakka (húðskútu) og æfðu sig við að henda pílum og var einn þeirra þar í hinum miklu fremri. Þessi mælti til Veiðfirðinga að sæmra væri þeim að nema íþróttir sínar en viðra skyrvambir í sólskini og tína bláber eins og hrafnar. Hinir svara að ekki þurfi þeir að standa á baki skrælingja um íþróttir og ekki muni þessir betur hæfa með pílum sínum en þeir með bogskeytum. Sneri þá skrælingjasonur skútunni til lands og sendi skeyti sitt í hóp Veiðfirðinga, og varð tólf ára gamall piltur fyrir og féll dauður við, því pílan kom á hann miðjan. Æptu þá skrælingjar fánalega og reru frá landi, en Veiðfirðingar skunda heim og segja feðrum sínum atburðinn og lét Ingjaldur bóndi kalla alla menn á móts við sig og gjörir uppskátt að hann vill fara að skrælingjum þegar samdægurs og drepa þá alla eða stökkva þeim úr héraði. Var brátt að þessu undið og urðu sextíu hraustra manna og fara nú hvatlega til strandar. Skrælingjar vóru lítt viðbúnir, því margir vóru ókomnir af sævi, og so frásagt að héraðsbændur drápu þá niður hvað sem fyrir var, einnig konur og börn skrælingja. En nú ber fjölda karlmanna að landi og þókti ógott að sjá umsvif Veiðfirðinga, búast nú í bardaga allharðan. Beittu skrælingjar beinyddum pílum, en héraðsmenn höfðu sverð eður höggspjót og fellu skrælingjar því sem strá.

Það er sagt af Ingjaldi bónda að hann sat á steini meðan bardaginn stóð því hann mátti ei aðstanda fyrir offitu sakir. Sóktu margir skrælingjar að hönum og varð hann fjögra manna bani sitandi. Lauk so að þar féllu allir skrælingjar og sneru héraðsbændur heim með sigri. Var Ingjaldi ekið á sleða og var ekki sár, en harla móður því ístran þreytti hann meir en sóknin. So er sagt fimm menn fellu af Veiðfirðingum, en ei vita menn tölu á skrælingjum er fellu á fundi þessum, en það var ærinn fjöldi.

Nú segir so frá að maður einn af liði skrælingja annaðtveggja af hugbleyði eður fyrir kænsku sakir kastaði sér heilum í valinn og bylti um sig dauðum náum. Stendur hann nú á fætur þegar héraðsbændur eru sjónum horfnir og hleypur til sjávar, kemst í húðskútu eina, rær sem mest nætur og daga. Kemur hann til Nabaitsok, er eg vil kalla Steinnes, og hittir þar landa sína ekki fáa, greinir þeim hið ljósasta af fundinum og eggjar fast til hefnda. Voru skrælingjar þess ótrauðir, en kváðu að hafa mundi verða kænsku við ef duga skyldi að fara að þeim Veiðfirðingum. Láta þeir nú um kyrrt fram um vetur, en þegar ísa tók að leysa hafa þeir gjörvan knör mikinn af rekaviðarrimum og þanið húðir um að utan. Máttu þar á ganga tvö hundruð manna og er sagt að skrælingjar þannig hafi fyrst upp fundið kvennabáta sína. Halda þeir nú til Veiðifjarðar og koma páskamorgun að landi. Þá var helgihald mikið í Veiðifirði og sáu nokkrir menn húðknerinn mikla út á firðinum og deildu um hvað vera mundi, en flestir sögðu firnastóran hafísjaka reka fyrir straumi, því eigi voru slíkar ferjur fyrr sénar, en húðirnar voru skafnar snjóhvítar á knerinum. Gáfu menn nú ekki gaum að þessu framar og fóru allir til kirkju, en það var siðvenja að enginn mátti láta sig finna utan kirkju. Vóru því þangað borin börn öll og aðrir sem vanfærir vóru. Nú þegar messa stóð sem hæst komu skrælingjar að bænum með tvö hundruð manns og höfðu allir miklar lyngbyrðir sem þéna áttu fyrir skjöld móti sverðum þeirra Veiðfirðinga, en þau var nú ekki að hræðast því allir vóru vopnlausir undir messu. Slá nú skrælingjar hring um kirkjuna og létu grjót og pílur rigna inn á heimamenn og er skjótt frá að segja að féll Ingjaldur bóndi og allur hans ættleggur, því ekkert varð af vörn því bæði vóru menn vopnlausir og hálfu færri en skrælingjar. Þó segja menn að einn sonur Ingjaldar slyppi út úr mannþrönginni og hljóp til sjávar. Eltu hann tuttugu heiðingjar og varðist hann þar um hríð með rekastaur nokkrum, en so lauk að illmennin grýttu hann til bana. – Endir.