Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Bamba

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Bamba

Séra Jón Steingrímsson prófastur í Skaftafellssýslu, sem var fæddur 1728, getur þess í ævisögu sinni að móðurafasystir sín Guðný Stefánsdóttir sem kunni margar trölla- og drauga- og afturgöngufrásögur hafi einnig sagt frá því hversu ágætar klukknahringingar væru til að fæla burtu slíkan fans. Hún hafði og séð klukku þá sem fannst í jörðu fyrir framan Hof í Skagafjarðardölum og kerald hvolft yfir. Er sagt að þar hafi áður átt að vera klaustur, en eyðzt í stóru plágunni 1404. Á klukkunni stóðu þessi orð:

„Vox mea est bamba,
possum depellere Sathan.“

Það þýðir:

„Mitt hljóð er ‘’bamba’’,
burt rek ég Satan.“