Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Oddastaður

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Oddastaður

Jólgeir landnámsmaður reið einu sinni hart frá bæ sínum, Jólgeirsstöðum; þá sá hann sand í sporum hestsins. Þá sagði hann: „Ekki verður þess langt að bíða að þessi jörð eyðileggist af sandfoki. Skal ég hér ekki lengur vera.“ Hann flutti sig þá burt með allt sitt og hét því að hann skyldi þar búa sem hann yrði staddur um sólarlag um kvöldið. Það var í Odda og þar byggði hann síðan; hvurnig sem þessu verður komið saman við Landnámu.

Þau ummæli fylgja Oddastað frá fornöld að hann skal ávallt eflast með örlæti, en eyðast með nízku og segja menn það sé reynt að örlátastir búi þar bezt.