Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Pilturinn og ísskútinn

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Pilturinn og ísskútinn

Árið 1853 að liðnum miðjum vetri skeði atburður sá í Skálavík í Bolungarvíkursókn og Ísafjarðarsýslu að piltar tveir stálpaðir voru þar í fjörunni við sjóinn að leika sér að því að skríða inn undir skúta á ísjökum; en er minnst varði sprakk einn jakinn; datt stykkið það er frá sprakk á annan piltinn og marði til dauðs.[1]

  1. Drengurinn hét Guðmundur Gíslason á Meiribakka í Skálavík, 15 ára gamall. Slysið varð 23. febr. um veturinn. „Dó undir hafísjaka“, segir í kirkjubókinni.