Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Steinólfur lági

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Steinólfur lági

Hann var landnámsmaður og bjó í Fagradal ytri á Steinólfshjalla. Þar sjást enn miklar túngarðarústir og er stór bugur á garðinum á einum stað, og er sú saga til þess að þræll einn er Bolli hét hafi átt að girða túnið fyrir Steinólf, en gjört þenna hlykk á garðinum svo að túnið yrði ekki eins stórt og hægra væri að slá það; fyrir þetta einræði sitt er sagt að Steinólfur hafi drepið þrælinn; stendur dys hans í túninu skammt frá og heitir Bolladys.