Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri/Viðburðasögur/Völvuleiði hjá Felli

Úr Wikiheimild
Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri  (1862) 
þjóðsaga, ritstjórn Jón Árnason
Völvuleiði hjá Felli

Sólheimaþing er yzta prestakallið í Vestri-Skaftafellssýslu. Prestssetrið þar heitir á Felli. Í hlíðunum fyrir austan bæinn stendur leiði eitt sem kallað er Völvuleiði. Það snýr í norður og suður. Er svo mælt að valvan hafi búið á Felli og mælt svo fyrir áður hún dó að sig skyldi grafa sem fyrst skini sól á morgna og síðast á kvöldi og var hún því grafin í hlíð þessari. Hún sagði og að eigi skyldi slá leiði sitt á sumrum og mundi sá illt af hljóta sem það gjörði. En það sagði hún að vel mundi þeim vegna er eigi slægi leiði sitt og ákvað að bóndinn á Felli skyldi æ greiða 60 fiska til fátækra á ári hverju auk þess er honum bæri með réttu. Þessi siður helzt við enn í dag.