Þótt þú langförull legðir
Útlit
eftir Stephan G. Stephansson
- Þó[tt] þú langförull legðir
- sérhvert land undir fót
- bera hugur og hjarta
- samt þíns heimalands mót,
- frænka eldfjalls og íshafs,
- sifji árfoss og hvers,
- dóttir langholts og lyngmós,
- sonur landvers og skers!
- Yfir heim eða himin,
- hvort sem hugar þín önd,
- skreyta fossar og fjallshlíð
- öll þín framtíðar lönd!
- Fjarst í eilífðar útsæ
- vakir eylendan þín:
- nóttlaus voraldar veröld,
- þar sem víðsýnið skín.
- Það er óskaland íslenskt,
- sem að yfir þú býr,
- aðeins blómgróin björgin,
- sérhver baldjökull hlýr,
- frænka eldfjalls og íshafs,
- sifji árfoss og hvers,
- dóttir langholts og lyngmós,
- sonur landvers og skers!
- Andvökur, úrval Sigurðar Nordals, 2. útgáfa 1980.