Allt fram streymir
Útlit
Allt fram streymir
Höfundur: Kristján Jónsson fjallaskáld
Höfundur: Kristján Jónsson fjallaskáld
- Allt fram streymir endalaust,
- ár og dagar líða.
- Nú er komið hrímkalt haust,
- horfin sumars blíða.
- Fölna grös, en blikna blóm,
- af björkum laufin detta.
- Dauðalegum drynur róm
- dröfn við fjarðar kletta.
- Allt er kalt og allt er dautt,
- eilífur ríkir vetur.
- Berst mér negg í brjósti snautt
- en brostið ekki getur.