Brennu-Njáls saga/80

Úr Wikiheimild
Brennu-Njáls saga
80. kafli

Njáll átti hlut að við þá er eftirmál áttu eftir þá Starkað og Þorgeir að þeir skyldu taka sættum og var héraðsfundur til lagður og teknir menn til gerðar og voru virðir í allir hlutir, tilför við Gunnar þó að hann væri sekur. En slík fégjöld sem ger voru þá galt Mörður allt því að þeir luku eigi fyrr upp gerð á hendur honum en gert var áður um hittmálið og létu þeir það á endum standast. Voru þeir þá alsáttir.

En á þingi var umræða mikil um mál þeirra Geirs goða og Högna og kom þar að þeir sættust og hélst sú sætt með þeim síðan. Bjó Geir goði í Hlíð til dauðadags og er hann úr sögunni.

Njáll bað konu til handa Högna, Álfeiðar dóttur Veturliða skálds, og var hún honum gefin. Þeirra son var Ari er sigldi til Hjaltlands og kvongaðist þar. Frá honum er kominn Einar Hjaltlendingur, hinn vaskasti maður. Högni hélt vináttu sinni við Njál og er hann úr sögunni.