Fara í innihald

Draumkvæði (Stjúpmóðurkvæði)

Úr Wikiheimild

Draumkvæði (Stjúpmóðurkvæði) er íslenskt danskvæði eða sagnadans.


1. FAGURT SYNGUR svanurinn
-um sumarlanga tíð-
þá mun lyst að leika sér,
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


2. Signý gekk til búða
-um sumarlanga tíð-
vakti upp mey svo prúða
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.*


3. Því hefir þú svo lengi sofið
um sumarlanga tíð
mart hefir mér fyrir augu borið
mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.*


4. Stjúpmóðir, ráddu drauminn minn!
-Um sumarlanga tíð -
eg skal gefa þér gullskrín,
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


5. „Hvörnig á ég að ráða hann?
-Um sumarlanga tíð -
Þú hefur ekki sagt mér þann."
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


6. Að mér þótti hann máni
-Um sumarlanga tíð -
skína yfir alla Skáney.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


7. Að mér þótti rótartré
-Um sumarlanga tíð -
hanga hátt yfir höfði mér.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


8. Að mér þótti fagur fugl
-Um sumarlanga tíð -
renna á mitt skemmugull.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


9. Að mér þótti stjörnur tvær
-Um sumarlanga tíð -
á mínum brjóstum sátu þær.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


10. Að mér þótti sjávarflóð
-Um sumarlanga tíð -
renna á mitt skemmugólf.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


11. Nú hef ég sagt þér drauminn minn:
-Um sumarlanga tíð -
ráddu hann eftir vilja þín!"
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


12. „Að mér þótti hann máni:
-Um sumarlanga tíð -
þín biður kóngur af Skáney.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


13. Að þér þótti rótartré:
-Um sumarlanga tíð -
allur lýður mun lúta þér.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


14. Að þér þótti fagur fugl:
-Um sumarlanga tíð -
þinn son verður fagur sem gull.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


15. Að þér þótti stjörnur tvær:
-Um sumarlanga tíð -
kóngadætur eru þær.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


16. Að þér þótti sjávarflóð:
-Um sumarlanga tíð -
það verður þín ævin góð.
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


17. Nú hef ég ráðið drauminn þinn:
-Um sumarlanga tíð -
eigðu sjálf þitt gullskrín!"
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.


18. Vendi ég mínu kvæði í kross
-Um sumarlanga tíð -
heilög María sé með oss
-mín liljan fríð!
og fagurt syngur svanurinn.