Faðir minn er róinn
Útlit
Faðir minn er róinn er íslensk þula sem hefur verið einhvers konar ljóðaleikur fyrir börn. Þulan var send Fornfræðafélaginu í Kaupmannahöfn árið 1853.
- Faðir minn er róinn
- langt út á sjóinn
- að sækja okkur fiskinn
- að færa upp á diskinn.
- Rafabelti og höfuðkinn
- berum við í bæinn inn,
- og það gefur guð minn.