Fjalldrapi

Úr Wikiheimild
Fjalldrapi
höfundur Hannes Hafstein
Hann vex upp í hlíðum, við hóla og börð,
við hreinsvala blæinn, í ófrjórri jörð.
Þótt ekki sé borin þar mykja í moldu,
þá megnar hann sjálfur að breiðast um foldu.
Hann vex upp í kjarri og hreykist ei hátt,
en heldur við jörðina, blómskreytir fátt,
en stendur því fastar og lifir því lengur,
og lætur ei buga sig, hvernig sem gengur.
Þótt óhjúkrað standi úr ísum og snjó
hans ólaufgað bar, þá lifir hann þó.
Er hæfur í vendi, að hreinsa með bæi,
því hann er mjór, og í stinnara lagi.
Er hæfur í vendi að húðstrýkja þá,
sem heilnæma tyftingu þarfnast að fá.
Þótt fannirnar kyngist hann álnarhátt yfir,
samt ímynd hins beiska sannleika lifir.