Fjallið Skjaldbreiður
Útlit
Fjallið Skjaldbreiður
Höfundur: Jónas Hallgrímsson
Höfundur: Jónas Hallgrímsson
- Fanna skautar faldi háum
- fjallið, allra hæða val,
- hrauna veitir bárum bláum
- breiðan fram um heiðardal.
- Löngu hefur Logi reiður
- lokið steypu þessa við.
- Ógnaskjöldur bungubreiður
- ber með sóma réttnefnið.
- Ríð ég háan Skjaldbreið skoða,
- skín á tinda morgunsól,
- glöðum fágar röðulroða
- reiðarslóðir, dal og hól.
- Beint er í norður fjallið fríða.
- Fákur eykur hófaskell.
- Sér á leiti Lambahlíða
- og litlu sunnar Hlöðufell.
- Vel á götu ber mig Baldur.
- Breikkar stirnað eldasund.
- Hvenær hefur heims um aldur
- hraun það brunað fram um grund?
- Engin þá um Ísafoldu
- unað hafa lífi dýr.
- Enginn leit þá maður moldu,
- móðu steins er undir býr.
- Titraði jökull, æstust eldar.
- Öskraði djúpt í rótum lands,
- eins og væru ofan felldar
- allar stjörnur himnaranns,
- eins og ryki mý eða mugga,
- margur gneisti um loftið fló.
- Dagur huldist dimmum skugga,
- dunaði gjá og loga spjó.
- Belja rauðar blossa móður,
- blágrár reykur yfir sveif,
- undir hverfur runni, rjóður,
- reynistóð í hárri kleif.
- Blómin ei þá blöskrun þoldu,
- blikna hvert í sínum reit,
- höfði drepa hrygg við moldu.
- Himna drottinn einn það leit.
- Vötnin öll, er áður féllu
- undan hárri fjallaþröng,
- skelfast, dimmri hulin hellu,
- hrekjast fram um undirgöng.
- Öll þau hverfa að einu lóni,
- elda þar sem flóði sleit.
- Djúpið mæta, mest á Fróni,
- myndast á í breiðri sveit.
- Kyrrt er hrauns á breiðum boga,
- blundar land í þráðri ró.
- Glaðir næturglampar loga,
- geislum sá um hæð og mó.
- Brestur þá og yzt með öllu
- í undirhvelfing hraunið sökk.
- Dunar langt um himinhöllu.
- Hylur djúpið móða dökk.
- Svo er treyst með ógn og afli
- alþjóð minni helgað bjarg.
- Breiður, þakinn bláum skafli,
- bundinn treður foldarvarg.
- Grasið þróast grænt í næði,
- glóðir þar sem runnu fyrr.
- Styður völlinn bjarta bæði
- berg og djúp. Hann stendur kyrr.
- Hver vann hér svo að með orku?
- Aldrei neinn svo vígi hlóð.
- Búinn er úr bálastorku
- bergkastali frjálsri þjóð.
- Drottins hönd þeim vörnum veldur.
- Vittu, barn, sú hönd er sterk. -
- Gat ei nema guð og eldur
- gjört svo dýrðlegt furðuverk.
- Hamragirðing há við austur
- Hrafna- rís úr breiðri -gjá.
- Varnameiri veggur traustur
- vestrið slítur bergi frá.
- Glöggt ég skil, hví Geitskór vildi
- geyma svo hið dýra þing.
- Enn þá stendur góð í gildi
- gjáin, kennd við almenning.
- Heiðarbúar! glöðum gesti
- greiðið för um eyðifjöll!
- Einn ég treð með hundi og hesti
- hraun - og týnd er lestin öll.
- Mjög þarf nú að mörgu að hyggja,
- mikið er um dýrðir hér!
- Enda skal ég úti liggja,
- engin vættur grandar mér.