Gunnars kvæði á Hlíðarenda
Útlit
Gunnars kvæði á Hlíðarenda er íslenskur vikivaki eða sagnadans. Ekkert þjóðlag hefur varðveist við kvæðið. Hver og einn syngur kvæðið þar af leiðandi með sínu lagi.
- 1. Gunnar hét bóndi á Hlíðarenda,
- þangað vildi ég vísu venda
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 2. Kona hans hét Hallgerður að nafni,
- þeirra var ekki lund að jafni
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 3. Gunnar mælir við Hallgerði sína,
- „Heyrðu mig hústrú fína
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 4. Segðu mér, ég ætla þig að spyrja,
- ég vil svo ræðu byrja
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 5. Hvaðan koma Hallgerði ostar,
- þeir eru svo góðra kosta?"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 6.„Víða koma oss konum ostar,
- mér gefast þeir af ljúfum losta!"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 7. „Mikið skal til almælis hafa,
- ég er svo djarfur að skrafa
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 7. Ekki skyldu þeir vera ófrjálsir,
- þau koma mér orð úr hálsi"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 8. Hann sló henni pústur á vanga
- blóðið varð út að ganga
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 9. Liðu svo fram langar stundir,
- Hallgerður þykkir í þeli undir
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 10. Loksins sóttu heim óvinir Gunnar,
- þeir vildu honum ei lífi unna
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 11. Gunnar mælir af móðugu hjarta,
- „heyrðu mig frúin bjarta!
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 12. Ljáðu mér hárið þitt fína
- í bogastrengina mína!
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 13. Ljáðu mér hárið þið góða,
- nú stár mitt líf til voða!"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 14. „Ég ljæ þér ekki neitt hár að sinni,
- það er í hyggju minni!"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 15. „Lítt man ég þann kinnhestinn gamla."
- „Ég hirði ei þínum dauða að hamla!"
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 16. Veittust þeir að Gunnari bónda
- og gjörðu honum flest til vonda
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.
- 17. Svo lyktaði þeirra fundum,
- að Gunnar lá dauður á grundu
- á þingi,
- betur unni Brynhildur Hringi.