Fara í innihald

Heims um ból

Úr Wikiheimild
Heims um ból
Höfundur: Sveinbjörn Egilsson
Heims um ból, helg eru jól,
signuð mær son Guðs ól,
frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:/: meinvill í myrkrunum lá. :/:
Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:/: konungur lífs vors og ljóss. :/:
Heyra má himnum í frá
englasöng: Allelújá.
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:/: samastað syninum hjá. :/: